TAEKI logo red

Terms & Conditions

1. Ástand við afhendingu og móttöku
• Tæki og fylgihlutir eru afhentir leigutaka í fullnægjandi, hreinu og notkunarhæfu ástandi.• Leigutaki skal yfirfara tækið við móttöku og tilkynna tafarlaust um hugsanlega galla eða flutningsskemmdir.
• Kvartanir sem berast eftir fyrsta virka leigudag hafa ekki lagalegt gildi og telst tækið þá afhent í góðu ástandi.

2. Notkun og staðsetning
• Leigutaki skal nota tækið á ábyrgan hátt og í samræmi við öryggisstaðla og reglugerðir um vinnuvernd.
• Einungis hæfir aðilar með tilskilin réttindi mega stjórna tækinu.
• Óheimilt er að flytja tækið af umsömdum vinnustað eða framleigja það án skriflegs samþykkis leigusala.

3. Rekstur og daglegt viðhald
• Leigutaki ber ábyrgð á daglegu eftirliti og viðhaldi, svo sem að athuga stöðu á olíu, kælivökva og rafgeymavatni, auk smurningar og hleðslu.
• Einungis má nota efni (olíu, eldsneyti o.fl.) sem leigusali vísar til.
• Leigutaka er með öllu óheimilt að gera breytingar eða viðgerðir á tækinu sjálfur.

4. Ábyrgð, tjón og tryggingar (Damage Waiver)
• Leigutaki ber fulla ábyrgð á öllu tjóni sem verður á tækinu á leigutímanum.

5. Takmörkun ábyrgðar leigusala
• Leigusali ber enga ábyrgð á rekstrartapi, hagnaðarmissi eða öðru afleiddu tjóni, óháð því hvort það tengist bilun á tækinu.
• Leigusali ber ekki ábyrgð á skemmdum á undirlagi, aðkomuvegum eða neðanjarðarlögnum á vinnusvæði.

6. Leigutími, afhending og flutningur
• Leigutími hefst þegar tæki er gert aðgengilegt fyrir leigutaka og lýkur þegar afskráning (off-hire) hefur átt sér stað.
• Leigutaki greiðir allan flutningskostnað.
• Við skil skal tæki vera aðgengilegt fyrir flutningabíl og með nægan straum eða eldsneyti til að hægt sé að hlaða því á flutningabíl. Sé tæki ekki aðgengilegt reiknast leiga þar til úr því er bætt.

7. Eldsneyti, hleðsla og þrif
• Leigutaki skal skila tækinu með fullan eldsneytistank.
• Sé tækinu skilað með vöntun á eldsneyti verður rukkað fyrir áfyllingu samkvæmt verðskrá leigusala.
• Fyrir rafdrifin tæki er innheimt sérstakt hleðslugjald.
• Tæki skal skilað í sama ástandi og það var móttekið. Ef þörf er á þrifum verður það rukkað sérstaklega samkvæmt verðskrá leigusala.

8. Notkunarmælingar og helgar
• Leigusali fylgist með notkun tækja með staðsetningar- og notkunarbúnaði.
• Leiga miðast við 10 klst. notkun á virkum degi.
• Ef tæki er notað um helgar eða helgidaga teljast þeir dagar sem fullir leigudagur og er rukkað fyrir það sérstaklega.
• Notkun allt að 20 mínútur á dag um helgar telst eðlileg tilfærsla og er ekki gjaldfærð.

9. Greiðsluskilmálar
• Reikningar skulu greiddir innan 10 daga frá útgáfu.
• Við vanskil reiknast hámarks leyfilegir dráttavextir.
• Ágreiningur um einstaka liði reiknings heimilar leigutaka ekki að fresta greiðslu á öðrum hlutum hans.

10. Vanefndir og eftirlit
• Leigusali hefur ótakmarkaðan aðgang að tækinu til eftirlits á leigutímanum.
• Við vanskil eða önnur brot á skilmálum getur leigusali rift samningnum fyrirvaralaust og sótt tækið á kostnað leigutaka.

TAEKI logo white

Fyrirspurn

Fyrirspurn / Til sölu

Contact Us

Contact Us

Fyrirspurn / Tilboð í leigu

Ef þig vantar tilboð í leigu á tæki eða ert með fyrirspurn, fylltu þá út formið og við höfum samband eins fljótt og auðið er.

Fyrirspurn